Fréttir

image

Kylfingar ATH: Berið virðingu fyrir Vellinum , umhverfinu og Íþróttinni

Almennar umgengnisreglur á golfvellinum

  1. Lagaðu kylfuför (divot)

    Ef torf rifnar upp eftir högg skal setja það aftur niður og troða varlega yfir.

  2. Lagaðu kúluför á flötum

    Allir leikmenn eiga að laga eigið kúluför og helst eitt til viðbótar til að halda flötunum sléttum og góðum.

    Leikmenn skulu hafa flatargafla sem skyldu áhald í golfpoka eins og aðrar golfkylfur.

  3. Rakaðu sandgryfjur

    Eftir að hafa farið í bunker skal raka yfir spor og skilja hrífuna snyrtilega eftir samkvæmt reglum vallarins.

  4. Varúð með golfkerrur og golfbíla

    Ekki aka eða draga kerrur nálægt flötum, teigum eða milli glompu og flatar. Fylgið merktum leiðum fyrir golfbíla.

  5. Virðið hraða leiksins

    Haldið góðu flæði á vellinum. Vertu tilbúinn að slá þegar röðin kemur að þér og leyfið hraðari hópum að fara fram úr ef þarf.

  6. Sýnið öðrum tillitssemi

    Forðist hávaða og hreyfingar meðan aðrir eru að slá. Setjið síma á hljóðlaust.

  7. Haldið vellinum hreinum

    Rusl, nikótínpúða og annað skal sett í ruslatunnur.

  8. Verndið völlinn

    Forðist óþarfa skemmdir á grasi, gróðri og búnaði vallarins. virðið það ef búið er að færa teigarmerki út fyrir eðlilega teigarsvæði að þar eru vallarstarfsmenn að vernda teigsvæðið svo það haldist leikhæft í allt sumar.

  9. Fylgið staðarreglum

    Kynnið ykkur reglur hvers vallar varðandi akstur, lokanir svæða og annað sem getur verið mismunandi milli valla.

  10. Sýnið kurteisi á flötum

    Gangið ekki á línu annarra leikmanna og forðist að skilja eftir spor eða skemmdir á flötinni.

  11. Öryggi fyrst

    Sláið ekki fyrr en öruggt er að enginn sé í hættu og kallið hátt „FORE!“ ef bolti stefnir í átt að öðrum.

  12. Umgangist búnað af virðingu

    Flagstöng, teigmerkingar og annar búnaður skal meðhöndla varlega og skilja rétt eftir.

image

Miðvikudagsmótaröð Örnu og Einarshúsins

Miðvikudagsmótaröð Arna Mjólkurvörur og Einarshús hefst þann 20. maí og verður spiluð alla miðvikudaga í sumar.
Alls verða mótin 16 talsins og telja 8 bestu mót hvers keppanda til lokastiga.

Leikfyrirkomulagið verður punktakeppni með forgjöf og verða leiknar 9 holur í hvert skipti. Sigurvegari hvers móts fær glæsileg verðlaun í boði Einarshúss – dýrindis pizzu að launum.

Mótaröðin er styrkt af Arna Mjólkurvinnslu og Einarshúsi, en Arna mun einnig gefa verðlaun fyrir heildarúrslit í lok tímabilsins.
Veitt er verðlaun í lok árs fyrir:
Flesta punkta í hverjum mánuði
Flesta punkta,  8 bestu mót
1,2 og 3 verðlaun
Besta skor í Höggleik 8 bestu

Við hvetjum alla kylfinga til að taka þátt í skemmtilegri og spennandi mótaröð þar sem góð stemning, keppni og glæsileg verðlaun verða í fyrirrúmi í allt sumar.
 Mótsgjald er 1000kr