Ósláanlegur bolti
Orðið ósláanlegur telja margir að vísi til þess að boltinn þurfi raunverulega að vera óleikhæfur og ekki hægt með nokkru móti að slá hann. En það er hins vegar ekki rétt, þar sem það er nægjanlegt að leikmaður telji sig ekki geta leikið boltanum. Álit annara á leikhæfi hans skiptir engu. Hvort leikmaður ákveður að taka lausn m.v. ósláanlegan bolta er því algerlega undir honum komið og bara undir honum komið. Enginn annar getur ákveðið að boltinn sé ósláanlegur og að leikmaður þurfi að taka viðkomandi lausn.
Við skulum hafa í huga að ef leikmaður ákveður að boltinn sinn sé ósláanlegur þá er hann að taka á sig víti. Dómari móts getur aldrei úrskurðað hvort bolti sé ósláanlegur eða ekki.
Ef bolti er dæmdur óslánlegur (unplayable) má leikmaðurinn sjálfur ákveða það hvar sem er á vellinum nema í vítissvæði (rauðu/gulu). Þá færðu 1 vítahögg og hefur þrjá möguleika samkvæmt reglu 19:
- Slá aftur þaðan sem síðasta högg var slegið
– farið aftur á fyrri stað og slá nýjan bolta. - Droppa aftur á línu
– fara eins langt aftur og þú vilt á línu frá holu í gegnum staðinn þar sem boltinn lá. - Droppa innan tveggja kylfulengda
– frá staðnum þar sem boltinn lá, ekki nær holu.
Í glompu
Ef boltinn er í glompu gilda sömu valkostir, en boltinn þarf yfirleitt að vera droppaður inni í glompunni.
Það er þó sérstakur aukakostur:
- fara út úr glompunni á línu aftur frá holu gegn 2 vítahöggum.
Mikilvægt
- Þú þarft ekki samþykki annarra til að dæma boltann óslánlegan.
- Þetta er oft notað þegar bolti liggur við tré, stein, runna eða í mjög slæmri legu
Ingólfur Hallgrímsson