Að bæta legu bolta
Ein algengustu mistökin sem menn gera er að þegar bolti liggur í þykku grasi eða lítill jarðvegsójafna er fyrir aftan boltann þá færa þeir grasið frá boltanum eða stíga á ójöfnunina og jafna þar með jarðveginn fyrir aftan boltann þannig að kylfan lendi ekki í grasinu eða ójöfnuninni þegar boltinn er sleginn. En með þessu hafa menn bætt legu boltans og áunnið sér almenna vítið, þ.e. 2 högg í víti í höggleik eða holutap í holukeppni (nema þegar þetta er gert á teig áður en teighögg er slegið).
Jafnframt eiga menn það til að merkja ekki legu bolta síns þegar þeir lyfta honum til að bera kennsl á hann, ýta svo grasi frá eða þrýsta niður jarðveg með hendinni þegar þeir leggja hann aftur eða reyna að láta hann liggja ofar í grasi en hann lá áður en honum var lyft. Reglurnar gera ráð fyrir að merkja verði legu bolta áður en honum er lyft og setja verður hann síðan á sama stað aftur eftir að kylfingur hefur skoðað boltann án þess að bæta umhverfi hans. Ef bolti er ekki merktur þá hlýtur leikmaður 1 högg í víti, en ef kylfingur setur ekki boltann aftur eins og hann var og bætir legu bolans þá hlýtur hann almennt víti.
Deila
Ingólfur Hallgrímsson